Auglýsing um nýtt deiliskipulag íþrótta- og þjónustusvæðis við Jakobínutún (Norðurtún) á Hólmavík.
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 19. ágúst 2014 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi íþrótta- og þjónustusvæðis við Jakobínutún (Norðurtún) samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Strandabyggðar 2010-2022 og nær yfir skilgreind svæði sem merkt eru S 11, S 12, S 13, O 4 og O5. Mörk deiliskipulagsins eru Hafnarbraut í suðri, ásinn í vestri, efri mörk íþróttasvæðis og væntanlegt íbúðasvæði í Brandskjólum í norðri og íbúðabyggð við Skólabraut og Vitabraut í austri.
Markmið deiliskipulagsins er að uppfylla kröfur aðalskipulagsins, skilgreina lóðir og nýtingu þeirra. Lóðirnar Jakobínutún 3, 5 og 7, áður Norðurtún 1, 3 og 5, stækka með nýrri skilgreiningu á lóðum.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3 á Hólmavík og á heimasíðu Strandabyggðar, www.strandabyggd.is frá og með 23. september 2014 til og með 4. nóvember 2014.
Hér má sjá Skipulag Jakobínutún 180914
Hér má sjá Skipulag Jakobínutún skýringamynd
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 4. nóvember 2014.
Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is
Þeir sem ekki gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
Hólmavík 18. september 2014.
Gísli Gunnlaugsson
skipulags- og byggingarfulltrúi