Auglýsing um skipulagsmál í Strandabyggð
Auglýsing um óverulega breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010 - 2022.
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 7. júlí 2015 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010 – 2022 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða óverulega breytingu á aðalskipulagi sem felur ekki í sér stórvægilegar breytingar á landnotkun. Verið er að fella út reit S13, sem ekki er lengur þörf fyrir og bæta við nýjum reit, V8, í staðinn. Með breytingunni er verið að samtvinna verslun og þjónustu á svæðinu og samnýta þannig vegi, bílastæði og lagnakerfi.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Uppdráttur er sýnir breytinguna er til sýnis á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3 á Hólmavík og á heimasíðu Strandabyggðar, www.strandabyggd.is.
Gísli Gunnlaugsson
skipulags- og byggingarfulltrúi