Auglýsing um skipulagsmál í Strandabyggð
Auglýsing um óverulega breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010 - 2022
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 11. september 2018 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010 – 2022 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða óverulega breytingu á aðalskipulagi sem felur ekki í sér stórvægilegar breytingar á landnotkun. Breytingin felst í því að hluta verslunarreitar V2 er breytt í athafnasvæði, þar sem fyrirhuguð er þjónusta fyrir bifreiðar og báta.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Uppdráttur er sýnir breytinguna er til sýnis á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3 á Hólmavík og hér á heimasíðu Strandabyggðar, www.strandabyggd.is.
Hólmavík 14. september 2018.
Gísli Gunnlaugsson
skipulags- og byggingarfulltrúi
Þeir sem óska nánari upplýsinga eða skýringa á samþykktri breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar geta snúið sér til skipulags- og byggingarfulltrúa í síma 456-3902, gsm síma 892-3952 eða á netfangið gisli@tvest.is til 31. október n.k.