Austurtún 8 - auglýst til tímabundinnar leigu
Umsóknir skal senda með pósti á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík eða í tölvupósti á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is, fyrir kl. 14:00 þann 16. desember 2013. Þeim umsækjendum sem þegar eiga umsóknir um leiguhúsnæði er bent á að endurnýja umsóknir sínar samkvæmt reglum, sjá hér að neðan. Sveitarstjórn úthlutar íbúðum samkvæmt reglum sem samþykktar voru í sveitarstjórn 21. júní 2011.
Reglur um útleigu á íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsinsStrandabyggðar
Samþykktar í sveitarstjórn Strandabyggðar 21. júní 2011
1. Strandabyggð getur leigt út íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins, bæði
tímabundið og ótímabundið. Gerðir eru skriflegir samningar við leigutaka og er
miðað við þriggja mánaða uppsagnarfrest af beggja hálfu. Heimilt er að tengja
leigugjald við vísitölu. Leigugjald skal taka mið af verði á almennum markaði á
svæðinu og jafnframt stærð, aldri, gerð og ástandi húsnæðis.
2. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að breyta leiguverði samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar.
Tilkynna skal leigutökum um slíkt áður en breytingin tekur gildi með þriggja
mánaða fyrirvara.
3. Sveitarstjórn getur tekið ákvörðun um að selja leiguíbúðir og íbúðarhús í
eigu sveitarfélagsins. Skylt er að tilkynna leigutaka um slíka ákvörðun þegar
hún liggur fyrir.
4. Þegar íbúðarhúsnæði losnar er meginregla að það tiltekna húsnæði skuli
auglýst opinberlega til leigu og óskað eftir umsóknum. Þeir sem þegar hafa lýst
yfir áhuga á leiguhúsnæði í eigu sveitarfélagsins þurfa að endurnýja umsókn
sína hverju sinni. Miða skal við að auglýsing sé uppi á viðteknum stöðum í
sveitarfélaginu og jafnframt birt á vef Strandabyggðar í að minnsta kosti 10
daga áður en umsóknarfrestur rennur út. Í einstökum tilfellum getur
sveitarstjórn vegna sérstakra aðstæðna tekið formlega ákvörðun um að
fyrirkomulag sé annað.
5. Áður en íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins er úthlutað til leigu skal
leita eftir umsögn félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps um hvort þörf sé
fyrir úthlutun þess á grundvelli félagslegra aðstæðna og sjónarmiða.
6. Sveitarstjórn skal á fundi sínum fjalla um og úthluta leiguíbúðum samkvæmt
fyrirliggjandi umsóknum með hliðsjón af aðstæðum umsækjenda.
7. Fara skal með umsóknir sem trúnaðarmál.