Barnamót HSS á Drangsnesi á sunnudag
| 19. ágúst 2011
Barnamót HSS í frjálsum íþróttum verður haldið á Drangsnesi sunnudaginn 21. ágúst næstkomandi. Mótið hefst kl. 14:00. Keppnisgreinar eru eftirfarandi: Börn 8 ára og yngri: 60 m. hlaup, boltakast og langstökk. Börn 9-10 ára: 60 m. hlaup, boltakast og langstökk Börn 11-12 ára: 60 m. hlaup, kúluvarp, spjótkast, langstökk og hástökk.
Tekið er við skráningum á mótið í netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is. Skrá þarf þátttöku fyrir kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 20. ágúst. Eftir mótið verður boðið upp á pylsur, drykki og tilheyrandi meðlæti í boði Kaupfélags Steingrímsfjarðar. Fjölmennum nú öll á Barnamótið á Drangsnesi og hvetjum krakkana okkar til dáða!