Brandskjól - framtíðar íbúðasvæði
Þorgeir Pálsson | 03. maí 2024
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Nú fara drög að endurgerðu Aðalskipulagi Strandabyggðar að líta dagsins ljós. Stórt og sérlega mikilvægt verkefni þar, er uppbygging íbúðakjarna í Brandskjólum. Í aðalskipulaginu kemur fram, að „gert sé ráð fyrir lágreistri byggð á einni hæð með fjölbreyttum húsagerðum, þ.e. einbýli, par- og raðhús á einni hæð“. Um er að ræða allt að 35 íbúðir. Þarna gerum við líka ráð fyrir að í framtíðinni geti risið þjónustukjarni fyrir aldraða.
Enginn efast um mikilvægi þess að auka framboð íbúða í Strtandabyggð. Uppbygging í Brandskjólum, mætir þeirri eftirspurn til lengri tíma litið.
Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti