Dagskrá Hörmungardaga
Veturinn er mörgum erfiður. Hann er langur, kaldur, dýr og óútreiknanlegur. Á Hörmungardögum gefst okkur tækifæri til að njóta allra þessara ömurlegheita saman og reyna að gera gott úr þeim… eða bara líða enn ver yfir hlutskipti okkar í slæmum félagsskap annarra furðufugla.
Til að létta ykkur lundina á þessum erfiðu tímum mun Félagsmiðstöðin Ozon standa fyrir knúskeppni, en allir vita að knús getur læknað flest allt og lætur öllum líða betur. Þátttakendur geta nálgast eyðublað á Facebook-síðu Hörmungardaga, í Kaupfélaginu á Hólmavík, pósthúsinu eða á Skrifstofu Strandabyggðar. Knúskeppnin hefst miðvikudaginn 18. febrúar og stendur til mánudagsins 23. febrúar en eyðublöðum með undirskriftum knúsaðra skal skila til tómstundafulltrúa þriðjudaginn 24. febrúar.
Fylgist vel með á www.facebook.com/hormungardagar og www.strandabyggd.is
Föstudagurinn 20. febrúar
11:30 – 12:30 Opinn heimalærdómur í dreifnámi FNV, Hafnarbraut 19.
12:30 – 13:00 Danspartý í Hnyðju. Fallegum dansi og góðri tónlist ekki lofað.
13:00 – 14:00 Opið hús í Grunnskólanum á Hólmavík.
13:00 – 15:00 Menning og samfélag. Málþing um menningarmiðlun á Kaffi Galdri.
14:00 Kökubasar leikskólans Lækjarbrekku í KSH
18:00 – 20:00 Pizza á Café Riis
21:00 Hryllingsmyndabíó í ungmennahúsinu Fjósinu, Hafnarbraut 19. (16+)
21:00 Café Riis. Pub quiz og opinn bar fram eftir nóttu. (18+)
Laugardagurinn 21. febrúar
11:00 Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur leiðir sniðgöngu. Gengið verður að ljótari stöðum Hólmavíkur og sagðar leiðinlegar sögur um óáhugaverð málefni. Lagt af stað frá bensíndælum N1 við gömlu sjoppuna. Frítt.
12:00 – 14:00 Brunch á Café Riis.
13:00 – 16:00 Opið hús í leikskólanum Lækjarbrekku. Bíósýning, leiksvæði, sala á skrani og listasmiðja. Kaffi og te í boði og popp og djús til sölu.
13:00 – 16:00 Harpa Ósk Lárusdóttir, vefarinn ungi frá Borðeyri, sýnir gaddavírskjól, vefnað og önnur verk í Hnyðju, Höfðagötu 3.
15:00 Kaffi Galdur. Kynning á Turtle filmfest og frumsýning á stiklu hátíðarinnar. Kaffi og með því til sölu og opinn hljóðnemi fyrir þá sem vilja létta á sér, nöldra, kvarta eða segja frá leyndarmáli.
20:00 – 23:00 Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir stórsýninguna Sweeney Todd: Morðóða rakarann við Hafnargötuna. Félagsheimilið á Hólmavík. Miðasala hjá Ester í síma 693-3474.
Sunnudagurinn 22. Febrúar
Konudagur
12:00 – 14:00 Brunch á Café Riis.
13:00 – 16:00 Harpa Ósk Lárusdóttir, vefarinn ungi frá Borðeyri, sýnir gaddavírskjól, vefnað og önnur verk í Hnyðju, Höfðagötu 3.
14:00 – 16:30 Opið hús hjá Félagi eldri borgara í Flugstöðinni, spil, kaffi og spjall. Öll velkomin.
16:00 Sauðfjársetur á Ströndum. Kaffihlaðborð, 1.500 kr. fyrir fullorðna og 800 kr. fyrir 6-12 ára. Klukkan 16:00 flytur Jón Jónsson þjóðfræðingur erindi sem kallast „Hugleiðing um hörmungarlíf: Stutta-Sigga, Jóhann-beri og fleira fólk.“
20:00 Eyvindur Karlsson - One Bad Day. Hörmungarlög á Kaffi Galdri. Aðgangur ókeypis.