Dýralæknir verður hér á Hólmavík 21.nóvember.
| 19. nóvember 2019
Gísli Sverrir Halldórsson dýralæknir í Búðardal, sinnir hreinsun á hundum fimmtudaginn 21.nóvember n.k. í Áhaldahúsinu milli kl. 16 og 18. Kattareigendur eru einnig minntir á nauðsyn þess að láta hreinsa ketti sína en það er þó ekki innifalið í leyfisgjaldi. Hunda og kattaeigendur í Strandabyggð eru hvattir til að mæta og nýta sér þjónustuna.
Allir hundar og kettir innan þéttbýlis skulu skráðir og bera merkingar skv. reglugerð um hunda og kattahald sem finna má á vef Strandabyggðar. Skylt er að færa hunda og ketti til hreinsunar árlega.
Þeir sem óska eftir annari dýralæknisþjónustu er velkomið að hafa samband við Gísla í síma : 434-1122 eða 862-9005