Endurskipulag kennslu í grunnskólanum
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Frá því greint var frá myglu í grunnskólanum, s.l. miðvikudag, hefur mikið gerst. Skólastjóri og starfsmenn grunnskólans, ásamt starfsmönnum áhaldahúss og skrifstofu Strandabyggðar, hafa unnið frábært verk á skömmum tíma. Búið er að skoða alla þá húsakosti sem komu til greina fyrir kennslu og meta kosti og galla þeirra. Kennarar eru byrjaðir að undirbúa kennsluefni og skipuleggja kennslu, sem hefst aftur á mánudag. Foreldrar munu fá tilkynningu þar um. Bæði vinir okkar í Kaldrananeshreppi og Reykhópahreppi hafa boðið okkur aðstoð.
Þá eru komin á samskipti við Verkfræðistofuna EFLU um nánari úttekt á aðstæðum í grunnskólanum og byrjað að taka saman gögn um fyrri viðgerðir og viðhald á húsinu. Við vonumst til þess að ítarleg úttekt á aðstæðum fari fram á næstu dögum. Sveitarstjórn tekur síðan stöðuna daglega og er einhuga um allar aðgerðir.
Þrátt fyrir að viðfangsefnið sé allt annað en skemmtilegt, hefur samstaða og jákvæðni einkennt alla vinnu og það er ástæða til að þakka og hrósa öllum sem hafa komið að þessu verkefni. Vel gert kæra starfsfólk!
Kveðja og góða helgi!
Þorgeir Pálsson
Oddviti