Endurskoðun skólamáltíða
Þorgeir Pálsson | 04. ágúst 2023
Hugmyndasöfnun vegna fyrirkomulags skólamáltíða
Framundan er endurskoðun á fyrirkomulagi skólamáltíða og innihaldi þeirra. Til að fanga sem best skoðanir og ábendingar foreldra barna í leik-, og grunnskóla, köllum við nú eftir ábendingum foreldra.
Má senda þær á sveitarstjóra, Þorgeir Pálsson á netfangið thorgeir@strandabyggd.is
Frestur til að skila inn ábendingum er til loka dags 13. ágúst n.k.