Enn eru nokkur laus störf í Íþróttamiðstöð Strandabyggðar
| 24. apríl 2013
Íþróttamiðstöð Strandabyggðar auglýsir eftir sumarstarfsfólki í eftirtalin verkefni:
- Afgreiðslu
- Baðvarörslu
- Sundlaugarvörlsu
- Þrif
- Önnur verkefni
Í reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum kemur fram að starfsmenn sem sinna laugargæslu skuli hafa náð 18 ára aldri og árlega standast hæfnispróf skv. III viðauka reglugerðarinnar.
Umsóknum skal skila á Skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, og er umsóknarfrestur til og með 30. apríl 2013. Einnig er hægt að senda umsóknir í tölvupósti á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is
Umsóknareyðublöð um störf hjá Strandabyggð má sjá neðst til hægri hér á síðunni.