Fatlað fólk á tímamótum - eru mannréttindi virt?
Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) heldur af því tilefni fræðslu- og umræðufundi víðs vegar um landið. Fundur undir yfirskriftinni ,,Fatlað fólk á tímamótum - eru mannréttindi virt?" verður haldinn á Reykhólum miðvikudaginn 8. júní 2011 kl. 15:00 - 17:30.
Íbúar í nærliggjandi sveitarfélögum eru hvattir til að mæta og kynna sér hvað er að gerast í þessum málum.
Efni fundar:
1. Ný hugmyndafræði um fötlun og Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi
fatlaðs fólks. Helga Baldvinsd. Bjargardóttir - Fötlunarfræði HÍ.
2. Þekkir þú réttindi þín? Hrefna K. Óskarsdóttir - ÖBÍ.
3. Fyrirhuguð Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar. Ingibjörg Loftsdóttir - Sjálfsbjörg.
4. Viðbrögð ÖBÍ vegna yfirfærslunnar. Guðmundur Magnússon - formaður ÖBÍ.
5. Umræður og fyrirspurnir.
Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks og aðrir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir.