Félagsþjónusta Stranda og Reykhóla eins árs í dag
| 01. febrúar 2012
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps er eins árs í dag, þann 1.
febrúar, en fyrir ári síðan hóf Hildur Jakobína Gísladóttir störf sem
félagsmálastjóri í 70% starfi. Þeir málaflokkar sem félagsþjónustan sinnir er,
barnavernd, félagsleg ráðgjöf, félagsleg heimaþjónusta, fjárhagsaðstoð, málefni
aldraðra og málefni fatlaðra. Á árinu sem hefur liðið frá því að Félagsþjónustan
tók til starfa hefur gríðarlega mikið og mikilvægt starf verið unnið við að
skilgreina grunnþætti starfsins, m.a. við að útbúa reglur og verkferla í nánast
öllum málaflokkum.
Með því að smella hér má lesa yfirlit um starf Félagsþjónustu Reykhóla og Stranda fyrsta
starfsárið. Strandabyggð óskar afmælisbarninu innilega til hamingju með
daginn!