Ferðaþjónustan og Strandir
| 11. mars 2020
Þann 19. mars n.k. mun Vestfjarðastofa halda fund um ferðaþjónustu í Strandabyggð og Kaldrananeshrepppi. Fundurinn fer fram kl 16:30 í Hnyðju. Fjallað verður um tvö stór verkefni sem framundan eru í vestfirskri ferðaþjónustu. Þróun nýrrar ferðamannaleiðar Vestfjarðaleiðin annars vegar og hins vegar uppfærslu á Áfangastaðaáætlun Vestfjarða.
Við hvetjum ferðaþjóna á svæðinu, sem og aðra áhugasama um uppbyggingu ferðaþjónustu, að mæta á fundinn og taka þátt í vinnunni með okkur.