Finnbogastaðaskóli í heimsókn
| 15. nóvember 2010
Nemendur Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi komu í heimsókn á skrifstofu Strandabyggðar á dögunum til að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins. Þeim fannst m.a. mjög áhugavert að fylgjast með hvernig matarumbúðir eru þvegnar og flokkaðar í viðeigandi kassa og fræddust um endurvinnslu sorps. Nemendurnir lögðu einnig fram tillögur sínar um hvernig megi gera umbætur á tjaldsvæðinu á Hólmavík. Í Finnbogastaðaskóla eru fjórir nemendur á aldrinum 6 - 13 ára og eru þeir duglegir að rækta tengsl við nágrannasveitarfélögin. Í haust hafa þeir heimsótt nemendur bæði í Grunn- og Tónskólanum á Hólmavík og nemendur í Grunnskólanum á Drangsnesi. Á Hólmavík sáu þeir leiksýninguna Prumpuhóllinn og á Drangsnesi tóku þeir þátt í skemmtikvöldi nemenda. Nemendur Finnbogastaðaskóla halda úti vefsíðunni: www.strandakrakkar.blog.is Sveitarfélagið Strandabyggð hlakkar til áframhaldandi samstarfs við þennan öfluga skóla.