Fjáröflunartónleikar í Hólmavíkurkirkju.
Miðvikudagskvöldið 24. júní næstkomandi munu tónlistarmennirnir Bjarni Ómar Haraldsson og Stefán Jónsson vera með fjáröflunartónleika í Hólmavíkurkirkju klukkan 20:30. Aðgangseyrir er 1500 kr. en 500 kr. fyrir yngri en 16 ára. Aðgangseyrir fer óskiptur í sjóð sem ætlað er að standa undir kaupum á hálfflygli fyrir nemendur Tónskólans á Hólmavík.
Á tónleikunum munu Bjarni og Stefán flytja lög af Fyrirheitum, sólóplötu Bjarna Ómars en frá því að platan kom út í haust hafa þeir ferðast með efnið og kynnt plötuna víða um land. Þeir hafa hlotið mikið lof fyrir tónlistarflutninginn og platan hefur fengið mjög góða dóma. Meðal annars sagði Morgunblaðið í gagnrýni að á plötunni hafi verið vandað til verka í hvívetna og að hér sé á ferðinni plata sem væri eitt af þessum fölskvalausu hliðarverkefnum sem út komu á síðasta ári. Að margra mati er um að ræða allt aðra upplifun af efni plötunnar á þessum tónleikum heldur en á plötunni enda ólíku saman að jafna þar sem lögin á plötunni eru í stórum hljómsveitarútsetningum en á tónleikunum er túlkun þeirra Bjarna og Stefáns afar einlæg í þægilegum útsetningum fyrir píanó, kassagítar og söng.
Allir nemendur, foreldrar og velunnarar Tónskólans á Hólmavík eru hvattir til að leggja sitt af mörkum til söfnunarinnar og eiga um leið skemmtilega og góða kvöldstund með þeim Bjarna og Stefáni.
Vakinn er athygli á að hægt er að greiða aðgangseyri með debet og kreditkortum. Þetta eru næst síðustu tónleikarnir í þessari tónleikaröð en þeir síðustu verða á Kaffi Norðurfirði laugardaginn 27. júní og hefjast kl. 20:00.