Flugstöðin
Salbjörg Engilbertsdóttir | 18. janúar 2019
Nú undanfarið hefur færst enn meira líf í Flugstöðina á Hólmavík en um nokkura ára skeið hefur félag eldri borgara haft þar aðstöðu til félagsstarfs. Í haust bættust í hópinn Tafl-og bridsfélag Strandamanna sem spilar öll mánudagskvöld frá kl. 19.30 og Lionsklúbburinn á Hólmavík sem fundar annan miðvikudag í hverjum mánuði. Á laugardaginn verður síðan formleg opnun Hvatastöðvarinnar í Flugstöðinni en Esther Ösp Valdimarsdóttir jogakennari mun bjóða upp á jogatíma og einnig fær hún til sín góða gesti á næstunni og býður upp á viðtalstíma.