Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar - afleysingastarf
Sveitarfélagið Strandabyggð óskar eftir að ráða starfsmann til að leysa af fostöðumann Íþróttamiðstöðvarinnar á Hólmavík í tímabundinni fjarveru hans.
Verkefni forstöðumanns felast m.a. í:
- Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi, fjárhagsáætlunum og rekstri íþróttamiðstöðvar
- Að hafa umsjón með viðhaldi og rekstri tækja og búnaðar
- Faglegri forystu
- Að stuðla að framþróun íþróttamiðstöðvarinnar
- Ráðningum afleysingafólks og mannauðsstjórnun
Gerðar eru kröfu um að viðkomandi:
- Uppfylli skilyrði sem fram koma í reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum
- Búi yfir skipulags- og stjórnunarfærni
- Búi yfir góðri samskiptafærni og getu til að geta tjáð sig í ræðu og riti
- Hafi til að bera frumkvæði og styrk til ákvarðanatöku
- Sé í starfi sínu hvetjandi og góð fyrirmynd
Starfinu fylgja töluverð samskipti við skriftstofu og aðrar stofnandir sveitarfélagsins, s.s. leik- og grunnskóla og áhaldahús sem og íþróttafélög og önnur félög á staðnum.
Allar frekari upplýsingar um starfið veitir Andrea K. Jónsdóttir sveitarstjóri á skrifstofu sveitarfélagsins eða í síma 4513510, milli kl. 10:00 og 14:00 alla virka daga.
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2015 en umsóknir skulu berast til sveitarstjóra á netfangið sveitarstjori@strandabyggd.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3, 510 Hólmavík. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Um Íþróttamiðstöðina
Sveitarfélagið Strandabyggð á og rekur íþróttamiðstöð þar sem er íþróttahús og sundlaug. Í íþróttamiðstöðinni fer fram íþrótta- og sundkennsla allra grunnskólabarna í Strandabyggð auk þess sem íþróttafélög á staðnum fá þar aðstöðu fyrir starfsemi sína. Auk þess geta einstaklingar og hópar leigt íþróttasalinn, farið í sund og heita potta, auk tækjasalar sem einnig er á staðnum. Tjaldstæði sveitarfélagins eru rekin af íþróttamiðstöðinni og er töluverður rekstur þar í kring yfir sumartímann. Mikil hefð er fyrir ýmissri íþróttaiðkun í Strandabyggð og hefur starf íþróttafélaganna eflst undanfarin ár og mikil sókn er í aðstöðu íþróttahússins. Við íþróttamiðstöðina starfa 2 starfmenn yfir vetrartímann en yfir sumarið eru starfmenn um 7. Sveitarfélagið er í vottunarferli EarthCheck ásamt Vestfjörðum öllum og tekur starfsemin mið af því.