Frágangur drenlagna við Grunnskólann á Hólmavík
Þorgeir Pálsson | 02. júlí 2023
Strandabyggð gerir hér með verðfyrirspurn varðandi frágang drenlagnar við Grunnskólann á Hólmavík.
VERKÍS hefur gert verklýsingu og magnskrá og eru þessi gögn aðgengileg á skrifstofu sveitarfélagsins og skulu fyrirspurnir sendar á strandabyggd@strandabyggd.is Áhugasamir geta einnig haft samband við Sigurð Marinó Þorvaldsson, forstöðumann áhaldahúss, í síma 894-4806, eða á netfangið siggimarri@strandabyggd.is
Tilboðum skal skilað inn á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið thorgeir@strandabyggd.is, merkt „grunnskóli – drenlögn“, fyrir kl 16, föstudaginn 21. júlí n.k.
Allar frekari upplýsingar veitir Sigurður Marinó í síma 894-4806.