Framkvæmdastjóri óskast fyrir Hamingjudaga.
| 15. febrúar 2010
Strandabyggð auglýsir eftir framkvæmdastjóra vegna bæjarhátíðarinnar "Hamingjudagar á Hólmavík" árið 2010 sem haldin er í byrjun júlímánaðar. Mun framkvæmdastjórinn annast allan undirbúning, skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar í samvinnu við menningarmálanefnd Strandabyggðar. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Strandabyggðar í síma 451-3510 eða á holmavik@holmavik.is. Umsóknum skal skilað til skrifstofu Strandabyggðar fyrir kl. 16:00 mánudaginn 22. febrúar.