Framkvæmdir við Hafnarbraut
| 14. desember 2020
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Eins og þið hafið án efa tekið eftir, hafa staðið yfir framkvæmdir á Hafnarbrautinni. Hér er um að ræða framkvæmdir á vegum Vegagerðarinnar, sem eru hluti af samningi Vegagerðarinnar og Strandabyggðar um yfirtöku sveitarfélagsins á Hafnarhrautinni að hluta. Það er þannig, að samkvæmt Vegalögum fellur hluti Hafnarbrautar eða Hólmavíkur til sveitarfélagsins og átti þessi yfirtaka í raun að vera afstaðin, en hefur dregist. Samningsaðilar hafa nú komið sér saman um það ástand sem vegurinn á að vera í þegar sveitarfélagið tekur hann yfir og nú er sem sagt unnið að uppbyggingu sjóvarnargarðs. Gatan mun breikka og þarna ætti að vera færi á gangbraut í framtíðinni. Það kemur allt í ljós, en við fögnum þessum framkvæmdum Vegagerðarinnar.
Kveðja
Þorgeir Pálsson
sveitarstjóri Strandabyggðar