Fulltrúi í Ungmennaráði Samfés
| 15. desember 2020
Félagsmiðstöðin Ozon leggur mikið upp úr því að vera í virku samstarfi á landsvísu og fjölga þannig möguleikum ungmenna á þátttöku í fjölbreyttu og uppbyggilegu starfi.
Samfés er einn þeirra vettvanga og þar leggjum við meðal annars áherslu á að bjóða fram í Ungmennaráð Samfés. Í ráðinu sitja lýðræðislega kjörin ungmenni alls staðar að af landinu en félagsmiðstöðvar í hverju kjördæmi kjósa sér sinn fulltrúa. Í liðinni viku var Unnur Erna Viðarsdóttir kjörin fulltrúi Ozon í Ungmennaráð Samfés og mun hún sitja í því næstu tvö árin.
Fulltrúar ráðsins funda reglulega en Samfés greiðir ferðakostnað ungmennanna. Ráðið hefur mikið vægi í rekstri samtakanna og á atkvæðarétt á aðalfundi þeirra en jafnframt er leitað til þess með ýmis mál enda hefur það tengingu við nær öll ungmenni á landinu.
Við óskum Unni til hamingju og velfarnaðar í nýju starfi.