Fundarboð - Sveitarstjórnarfundur 1237 í Strandabyggð
| 03. júlí 2015
Fundur nr. 1237 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í þriðjudaginn 7. júlí 2015, kl. 16.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Frá Félagi Vestfirskra listamanna, kynning og tillaga af listamannaþingi sem haldið var 16/05/2015
- Erindi frá Húnaþingi Vestra vegna uppgjörs varðandi Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna, dagsett 24/06/2015
- Svar frá Lögreglustjóranum á Vestfjörðum vegna ályktunar frá sveitarstjórn Strandabyggðar varðandi málefni lögreglu á svæðinu, dagsett 26/06/2015
- Bréf frá Byggðastofnun vegna umsóknar í verkefninu „Brothættar byggðir“, dagsett 26/06/2015
- Minnisblað frá Siglingasviði Vegagerðarinnar varðandi breytingar á framkvæmdum í Hólmavíkurhöfn, dagsett 17/04/2015
- Fundargerð Heilbrigðisnefndar Vestfjarða frá 12/06/2015
- Afgreiðsla á liðum 1 og 2 úr fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar frá 13/05/2015 sem frestað var á fundi sveitarstjórnar 19/05/2015
- Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar frá 06/07/2015
- Fundargerð Fræðslunefndar frá 06/07/2015
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Ásta Þórisdóttir
Haraldur V. A. Jónsson
Ingibjörg Benediktsdóttir
Ingibjörg Emilsdóttir
Jón Gísli Jónsson
3. júlí 2015
Andrea Kristín Jónsdóttir
sveitarstjóri