Fundarboð - Sveitarstjórnarfundur 1239 í Strandabyggð
| 12. september 2015
Fundur nr. 1239 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í þriðjudaginn 15. september 2015, kl. 16.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Erindi frá Björgunarsveitinni Dagrenningu, beiðni um styrk vegna bifreiðakaupa, dagsett 03/08/2015
- Tvö erindi varðandi móttöku flóttafólks:
Bréf frá Velferðarráðuneytinu varðandi móttöku flóttafólks og sveitarfélög, dagsett 1/9/2015
Bréf frá Andreu Vigfúsdóttur varðandi mögulega móttöku flóttamanna, dagsett 26/08/2015 - Bréf frá Sif Huld Albertsdóttur varðandi fjárhagsáætlanagerð BsVest, dagsett 8/9/2015
- Drög að verkefnistillögu og kostnaðaráætlun frá Alta vegna samsvæðisskipulags, send 27/8/2015
- Tilkynning um fyrirhugaða tímabundna skerðingu á jafnorku til húshitunar, bréf frá Landsvirkjun til Orkubús Vestfjarða, dagsett 1/9/2015
- Breytingar á nefndarskipan í Strandabyggð
- Fundargerð aðalfundar Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps frá 3/9/2015
- Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar frá 10/9/2015
- Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar frá 14/9/2015
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Ásta Þórisdóttir
Haraldur V. A. Jónsson
Ingibjörg Emilsdóttir
Jón Gísli Jónsson
Jóhann Björn Arngrímsson
12. september 2015
Andrea Kristín Jónsdóttir
sveitarstjóri