Fundarboð - Sveitarstjórnarfundur 1241 í Strandabyggð
| 06. nóvember 2015
Fundur nr. 1241 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í þriðjudaginn 10. nóvember 2015, kl. 16.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Fjárhagsáætlun Strandabyggðar fyrir árið 2016, fyrri umræða
- Þriggja ára áætlun Strandabyggðar fyrir árin 2017 – 2019, fyrri umræða
- Bréf frá Atvinnuvega- og nýsköpunaráðuneyti: Umsókn um byggðakvóta fiskveiðiárið 2015 – 2016, dagsett 20/10/2015
- Drög að reglum um innheimtu B-gatnagerðargjalda
- Erindi frá Stígamótum, ósk um fjárstuðning, dagsett 07/10/2015
- Bréf frá sveitarstjóra Reykhólahrepps, kynning á Öldungaráði Dalabyggðar og Reykhólahrepps, dagsett 20/10/2015
- Svæðisskipulag fyrir Reykhólahrepp, Dalabyggð og Strandabyggð – Kostnaðaráætlun og verkefnistillaga frá Alta efh., send 27/8/2015
- Fundargerð aðalfundur Sorpsamlags Strandasýslu frá 4/11/2015
- Fundargerð stjórnar Hafnarsambands Íslands frá 23/10/2015
- Fundargerð stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga frá 8/10/2015
- Fundargerð Samband íslenskra sveitarfélaga frá 30/10/2015
- Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar frá 5/11/2015
- Fundargerð Fræðslunefndar frá 5/11/2015
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Ásta Þórisdóttir
Haraldur V. A. Jónsson
Ingibjörg Benediktsdóttir
Ingibjörg Emilsdóttir
Jón Gísli Jónsson
6. nóvember 2015
Andrea Kristín Jónsdóttir
sveitarstjóri