Fundarboð - Sveitarstjórnarfundur 1257
| 10. febrúar 2017
Fundur nr. 1257 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í þriðjudaginn 14. febrúar 2017, kl. 16.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Erindi frá Félagsmálastjóra Stranda og Reyhólkahrepps, varðar námskeiðið Uppeldi sem virkar, færni til framtíðar og mögulegur afláttur af leikskólagjöldum, dagsett 30/1/2017
- Samþykkt vinnufundar sveitarstjórnar varðandi seinni áfanga viðbyggingar við leikskólann Lækjarbrekku á Hólmavík, frá 19/1/2017
- Undirbýningur og samþykkt sveitarstjórnar vegna stofnununar B-hlutafyrirtækis í tengslum við ljósleiðara í Strandabyggð – Veitustofnun Strandabyggðar
- Skýrsla sveitarstjóra og forstöðumanna fyrir desember 2016 og janúar 2017
- Fundargerð skjáfundar svæðisskipulagsnefndar DRS og Alta frá 13/12/2016
- Fundargerð 390. Fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands
- Fundargerðir stjórnar FV frá 14/12/2016 og 24/1/2017
- Fundargerð Samráðsvettvang sveitarfélaga á Vestfjörðum frá 25/1/2017
- Fundargerð Fræðslunefndar frá 7/2/2017
- Fundargerðir Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar frá 9/1/2017 og 8/2/2017
- Fundargerð Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefndar frá 9/2/2017
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Ásta Þórisdóttir
Haraldur V. A. Jónsson
Ingibjörg Emilsdóttir
Jóhann Björn Arngrímsson
Jón Gísli Jónsson
10. febrúar 2017
Andrea Kristín Jónsdóttir
sveitarstjóri