Fundur um menntamál í Strandabyggð!
| 18. febrúar 2020
Við minnum á fundinn á morgun, miðvikudag í Hnyðju, kl 17-19, sem Grunnskólinn á Hólmavík, Trappa og Strandabyggð standa fyrir.
Kristrún Lind Birgisdóttir frá Tröppu, mun fara yfir áherslur í starfi leik- og grunnskóla og hvernig unnið er eftir aðalnámskrá hvað þessi skólastig varðar. Fundarstjóri er Þorgeir Pálsson.
Hér er kjörið tækifæri til að fræðast um þær áherslur og þau viðmið sem skólastarf á Hólmavík styðst við og ræða hvernig við getum eflt og stutt við skólastarf í Strandabyggð.
Við hvetjum foreldra, aðstandendur og aðra áhugasama um menntamál, til að mæta.