Fyrirlestur um jákvæð samskipti í boði Geislans
Salbjörg Engilbertsdóttir | 12. apríl 2023
Ungmennafélagið Geislinn býður íbúum á öllu svæði HSS á fyrirlestur um jákvæð samskipti.
Fimmtudaginn 13. apríl kemur Pálmar Ragnarsson til okkar á Strandir og verður með sinn margrómaða fyrirlestur um jákvæð samskipti. ÖLL VELKOMIN
Fyrirlestur fyrir nemendur í 4.-10. bekk grunnskóla á Drangsnesi og Hólmavík verður klukkan 14:45-15:30. Fyrir alla aðra íbúa verður fyrirlesturinn haldinn í félagsheimilinu á Hólmavík klukkan 18:00 þann sama dag 13. apríl.
Hlökkum til að sjá ykkur!