Gögn vegna Aðalskipulags Strandabyggðar.
| 20. janúar 2010
Þar sem margir hafa haft samband vegna erfiðleika við að nálgast gögn vegna Aðalskipulags Strandabyggðar er vakin athygli á því að þegar smellt er á Aðalskipulag birtist þar undirflokkur sem heitir Skrár og skjöl og skal smella á þann undirflokk. Þá birtast öll gögn á pdf formi er varða gerð aðalskipulags Strandabyggðar.