Halló, hæ!! 6.sept er á morgun ertu búin að sækja um??
Ert þú með góða hugmynd í kollinum og langar að koma henni af stað, jafnvel koma henni í framkvæmd? Þá hvetjum við, þig til að sækja um.
Nú er komið að haustúthlutun styrkja hjá Strandabyggð.
Markmiðið er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtaks einstaklinga sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreytilegu mannlífi. Styrkirnir eru upp að 100.000 þúsund krónum, ef sótt er um styrk umfram það skal leitað eftir samstarfssamningi við sveitarfélagið.
Hér til hægri á síðunni er þessi fallegi blái reitur
kíktu þar inn og ekki vera feimin/nn,líttu á og athugaðu hvort að þetta sé ekki eitthvað fyrir þig og þína hugmynd.
Umsóknarfrestur er til 6.sept.2019 og úthlutun styrkja er svo 1.okt.2019