Hamingju-undirbúningur að hefjast
| 22. febrúar 2011
Ákveðið hefur verið að nýráðinn tómstundafulltrúi Strandabyggðar, Arnar Snæberg Jónsson, muni hafa umsjón með bæjarhátíðinni Hamingjudögum á Hólmavík þetta árið en hún verður haldin dagana 1.-3. júlí. Sér hann um undirbúning og skipulagningu í nánu samráði við Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar. Arnar hefur þegar hafist handa við undirbúninginn og allar hugmyndir íbúa og velunnara hátíðarinnar eru vel þegnar. Netfangið er
tomstundafulltrui@strandabyggd.is og símanúmer 894-1941. Splunkuný vefsíða Hamingjudaga er að finna á slóðinni www.strandabyggd.is/hamingjudagar.