Hlaupasumar
| 05. júní 2014
Í Strandabyggð er mikið hlaupið. Íbúar sem og gestir hlaupa um fjöll og firnindi í nágrenni Hólmavíkur, mis fimlega þó. Í júní er sannarlega engin breyting á því en skipulögð hlaup eru á dagskrá alla laugardaga í júní.
Laugardaginn 7. júní er Götuhlaup HSS og Hólmadrangs og leggur það í hann frá Íþróttamiðstöðinni kl. 11 fyrir þá sem hlaupa 5 eða 10 km og kl. 13 fyrir þá sem hlaupa 3 km.
14. júní er Kvennahlaupið á dagskrá, 21. júní er það Þrístrendingur og loks er það Hamingjuhlaupið víðfræga laugardaginn 28. júní.
Fjölmennun í hlaupin og förum hraðar en þeir sem sitja heima.