Hlutastarf í íþróttamiðstöð auglýst laust til umsóknar
Íþróttamiðstöðin á Hólmavík auglýsir eftirtalin störf:
Starfsmaður í íþróttamiðstöð veturinn 2011 - 2012
- Afgreiðslustörf
- Baðvarsla í kvennaklefa
- Létt þrif
- Sundlaugarvarsla
- Önnur störf sem starfsmanni eru falin
Starfsmaður sinnir einnig móttöku grunnskólanemenda á öllum aldri sem sækja sund- og íþróttatíma í íþróttamiðstöðinni og þarf því að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum. Einnig er lögð áhersla á ríka þjónustulund, dugnað og sjálfstæð vinnubrögð.
Vinnutími er frá kl. 10:30 - 14:00 mánudaga - fimmtudaga (tímasetning gæti breyst lítillega þegar stundatöflur Grunn- og Tónskólans á Hólmavík liggja fyrir).
Þar sem viðkomandi starfsmaður þarf að gegna baðvörslu í kvennaklefa koma konur eingöngu til greina í starfið.
Rík áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, dugnað og sjálfstæð vinnubrögð.
Umsóknir ásamt ferilskrá og meðmælendum berist í Íþróttamiðstöðina á Hólmavík eða með tölvupósti í netfangið sundlaug@holmavik.is í síðasta lagi kl. 12:00 á hádegi miðvikudaginn 31. ágúst 2011.
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Jónsson forstöðumaður í síma 893 - 4622.