Hólmavík – stækkun íbúðarbyggðar - Forkynning vegna breytingar á aðalskipulagi
| 30. júní 2023
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 14. mars 2023 að vinna að breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010-2022 vegna stækkunar íbúðarbyggðar á Hólmavík.
Í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal vinnslutillaga aðalskipulagsbreytingar kynnt áður en hún er lögð fyrir sveitarstjórn.
Vinnslutillöguna má nálgast hér.
Ábendingum má skila til skipulagsfulltrúa í netfangið skipulags@dalir.is einnig er hægt að skila ábendingum í gegnum skipulagsgáttina. Frestur til að koma á framfæri ábendingum við vinnslutillögu er til 21. júlí 2023.
Skipulagsfulltrúi Strandabyggðar