Hreyfivika UMFÍ
| 21. september 2015
Í dag er fyrsti dagur hreyfiviku UMFÍ og er þetta tilvalin vika til að hreyfa sig eins mikið og hægt er, skoða hvað er í boði í kringum sig og prufa eitthvað nýtt.
Hvílum bílinn - nýtum hjól og fætur til að koma okkur á milli staða.
Sund - sundkeppni á milli sveitarfélaganna verður í gangi alla vikunna, nánari upplýsingar má sjá á meðfylgjandi mynd.
Hreyfiselfie - leikur sem verður í gangi alla vikuna, nánari upplýsingar má sjá á meðfylgjandi mynd.
Útileikir - Íris Ósk Ingadóttir, tómstundafulltrúi, og Elísabet Kristín Kristmundsdóttir, stuðningsfulltrúi og íþróttakennari, munu halda uppi leikjum fyrir alla íbúa á Jakobínutúni miðvikudaginn 23. september frá kl. 16:30.