Íbúafundur - Vangaveltur um hitaveitu í Strandabyggð
| 29. janúar 2016
Næstkomandi miðvikudag, þann 3. febrúar nk. verður blásið til íbúafundar í Félagsheimilinu á Hólmavík sem ber yfirskriftina "Vangaveltur um hitaveitu á Hólmavík". Þau María Maack, verkefnastjóri hjá Atvest og Haukur Jóhannesson jarðfræðingur munu vera með umfjöllun um efnið og síðan verður opnað fyrir umræður og fyrirspurnir. Fundurinn hefst kl. 19:30 og eru allir hjartanlega velkomnir.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Sveitarstjóri setur fundinn
- María Maack hjá ATVEST gerir grein fyrir lögum um hitaveitur, kostum þeirra og tekur fyrir dæmi um nýlegar hitaveitur á landinu.
- Haukur Jóhannesson, jarðfræðingur segir frá jarðvarma í Strandabyggð og kostum sem koma til greina til að nýta í hitaveitu á Hólmavík. Fjallað verður um fyrri kostnaðarathuganir.
- María gerir grein fyrir hvers konar vinnu og tíma þarf til undirbúnings lagningu hitaveitu, meðal annars til að setja upp raunhæfa kostnaðaráætlun út frá ákveðnum hönnunarhugmyndum.
- Umræður og fyrirspurnir undir stjórn Maríu
Áætlað er að fundurinn vari í um 2 tíma.
Mætum öll og fræðumst um möguleika á hitaveitu.
Andrea K. Jónsdóttir
sveitarstjóri
sveitarstjóri