Íbúafundur í kvöld.
| 25. maí 2009
Haldinn verður íbúafundur í Félagsheimilinu á Hólmavík í kvöld, mánudaginn 25. maí kl. 20:00, og eru það framkvæmdastjóri Hamingjudaga og menningarmálanefnd sem boða til fundarins. Markmiðið með fundinum er að kynna þá atburði sem þegar eru komin á dagskrá Hamingjudaga og kalla eftir hugmyndum hjá íbúum um efni og skemmtiatriði. Er vonast til að sem flestir sjái sér fært að mæta og komi sínum skoðunum og hugmyndum á framfæri.