Íbúafundur mánudaginn 12. mars 2018
| 07. mars 2018
Kæru íbúar í Strandabyggð
Boðað er til íbúafundur í Félagsheimilinu á Hólmavík.
Fyrir hlé fara sveitarstjórnarmenn yfir sína málaflokka, hvað hefur verið gert, hvað hefur setið á hakanum, hvað er framundan og verkefni sem gott væri að fara í.
Boðið verður upp á súpu í fundarhléi.
Eftir hlé gefst íbúum kostur á að koma fram með hugmyndir og áherslur á verkefni og framkvæmdir sem þeir vilja sjá framundan. Unnið verður í hópum og mun Skúli Gautason menningarfulltrúi Vestfjarða leiða þá vinnu.
Allir íbúar eru hvattir til að koma og taka þátt.
Hlökkum til að sjá ykkur í Félagsheimilinu þann 12. mars kl. 17:00-19:00.
F.h. Strandabyggðar
Andrea K. Jónsdóttir, sveitarstjóri