Íbúafundur um málefni Hólmadrangs
Salbjörg Engilbertsdóttir | 16. október 2018
Sveitarfélagið Strandabyggð boðar hér með til íbúafundar n.k. miðvikudag 17. október í félagsheimilinu Hólmavík, kl. 18.15-19.30.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Afstaða og sýn Strandabyggðar – Þorgeir Pálsson sveitarstjóri
- Staða mála í Hólmadrangi – Viktoría Rán Ólafsdóttir, stjórnarformaður Hólmadrangs
- Tækifærin framundan – Jónatan S. Svavarsson, rekstrarráðgjafi; fyrir hönd ráðgjafateymis
- Umræður, fyrirspurnir.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.
f.h. sveitarstjórnar Strandabyggðar
Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri