Íþróttamiðstöð og staða viðgerða
Salbjörg Engilbertsdóttir | 21. febrúar 2019
Kæru íbúar og gestir!
Undanfarna daga hafa viðgerðir á lögnum verið í fullum gangi í Íþróttamiðstöðinni og gengur vonum framar, enda samhent lið verktaka og starfsmanna þar á ferð. Þar sem Strandagangan verður haldin n.k. laugardag hefur þetta þótt óheppileg tímasetning en við það var ekki ráðið. Nú hefur það verið staðfest að sturturnar verða komnar í gagnið á laugardag, en þar sem við getum því miður ekki boðið upp á fulla þjónustu þ.e. aðgang í potta og sundlaug, vill Strandabyggð bjóða keppendum Strandagöngunnar í sturtu endurgjaldslaust. Þökkum skilning og þolinmæði.