Jólagjöf til starfsmanna Strandabyggðar - Óskum eftir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila
Heiðrún Harðardóttir | 21. nóvember 2024
Strandabyggð auglýsir eftir þjónustuaðilum, framleiðendum, veitingaaðilum og verslunaraðilum í Strandabyggð sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem verður jólagjöf sveitarfélagsins til starfsmanna Strandabyggðar.
Skilyrði fyrir þátttöku er að rekstraraðili eða fyrirtæki sé skráð hjá hinu opinbera og sé starfandi í Strandabyggð.
Gjafabréfin munu vera með upptalningu þeirra fyrirtækja og þjónustuaðila sem skrá sig hjá skrifstofu Strandabyggðar og nýtast sem greiðsla fyrir eða upp í vöru og/eða þjónustu hjá viðkomandi fyrirtæki.
Tekið er við skráningum rekstrar- og þjónustuaðila á strandabyggd@strandabyggd.is til og með 30. nóvember.
Gert er ráð fyrir að gjafabréfin gilda frá desember 2024 til 31 maí 2025.
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við skrifstofu Strandabyggðar í s: 451-3510 eða á strandabyggd@strandabyggd.is