Kjörskrá Strandabyggðar
| 17. maí 2010
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninganna 29. maí 2010 mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá og með 19. maí til og með 29. maí 2010. Skal kjósendum bent á að skráð lögheimili samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár fjórum vikum fyrir kjördag ræður alfarið hvar kjósandi skal tekinn á kjörskrá. Samkvæmt 1. mgr. 27. gr. kosningalaga skulu sveitarstjórnir þegar taka til meðferðar athugasemdir er þeim berast vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar, ef við á. Leiðréttingu má gera fram á kjördag, en óheimilt er að gera breytingar ef tilkynning um lögheimili hefur ekki borist þjóðskrá í tæka tíð.