Kjörskrá vegna kosningar til Alþingis 25. apríl n.k. og opnun kjörfundar.
| 17. apríl 2009
Kjörskrá vegna kosningar til Alþingis.
Kjörskrá vegna kosningar til Alþingis sem fram fer laugardaginn 25. apríl 2009 liggur frammi á skrifstofu Strandabyggðar. Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að koma þeim á skrifstofu Strandabyggðar. Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt fram á kjördag gert leiðréttingar á kjörskrá, ef við á.
Atkvæðagreiðsla á kjörstað.
Ein kjördeild verður í Strandabyggð og verður kjörstaður nú í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík. Kjörfundur hefst kl. 10:00 en kjörstaður mun opna kl. 11:00 og verður lokað kl. 18:00 (sbr. þó 93. gr. laga um kosningar til alþingis nr. 80/1987).