Kosningakaffi
Salbjörg Engilbertsdóttir | 24. maí 2018
Kosningakaffi í boði Strandabyggðar verður í Félagsheimilinu frá kl. 14-17 laugardaginn 26. maí n.k. Umsjónarmenn eru nemendur í unglingadeild Grunnskólans og fjölskyldur þeirra, en þau eru að safna í ferðasjóð. Við hvetjum alla til að mæta snemma á kjörstað og fagna síðan deginum og mæta á kaffihlaðborð. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.