Laus störf í menntastofnunum Strandabyggðar
| 04. maí 2012
Grunn- og Tónskólinn á Hólmavík auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:
- Þrjár grunnskólakennarastöður: Umsjónarkennsla, íslenska, samfélagsgreinar, tungumál, íþróttir og sund.- Tvær stöður tónlistarkennara á grunn- og miðstigi.
- Tvær stöður stuðningsfulltrúa til að sinna nemendum með sérþarfir og lengdri viðveru nemenda, stöðuhlutfall 70 – 100%.
Leikskólinn Lækjarbrekka á Hólmavík auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:
- Þrjár stöður leikskólakennara. Um er að ræða þrjár 100% stöður með vinnutíma frá kl. 08:00-16:00. Við leitum eftir starfsfólki sem getur hafið störf um miðjan ágústmánuð.
- Starfsmenn í afleysingar í júní og fyrstu vikuna í júlí.
Smellið hér til að sjá auglýsinguna í heild sinni og frekari upplýsingar.