Lausamunir á opnum rýmum
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Nokkuð er um að íbúar staðsetji lausamuni á opnum svæðum í þorpinu. Það er stundum skiljanlegt, t.d. ef forða þarf munum vegna veðurs eða ef eitthvað bilar. En við kjósum þó að hafa eitthvað skipulag á því, hvar lausamunir séu geymdir. Í Norðurfjörunni, fyrir neðan Brynjólfshús, hafa sportbátar t.d. verið staðsettir yfir veturinn og viljum við benda eigendum slíkra báta á að nýta sér það svæði.
Hvað varðar aðra lausamuni, þurfa eigendur þeirra síðan að staðsetja annars staðar en á þessum opnu svæðum. Sveitarfélagið býður t.d. aðstöðu á geymslusvæði sveitarfélagsins.
En umfram allt, ræðum málin og finnum lausn. Hafið því endilega samband við sveitarstjóra í síma 899-0020 eða á netfangið thorgeir@strandabyggd.is eða ræðið málið við starfsmenn áhaldahúss, og við finnum sameiginlega lausn.
Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti