Lausamunir á opnum svæðum - ÍTREKUN
Þorgeir Pálsson | 24. nóvember 2022
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Þann 28. október s.l. var frétt hér á heimasíðu Strandabyggðar um lausamuni á opnum svæðum í þorpinu. Með fréttinni var mynd af bátum, fellihýsi og kerru, sem komið hefur verið fyrir á opnu svæði. Fréttin er hér: Strandabyggð / Fréttir / Lausamunir á opnum rýmum (strandabyggd.is)
Engin viðbrögð urðu við fréttinni og því er það ítrekað hér, að eigendur lausamuna á opnum svæðum þurfa að fjarlægja þá og koma þeim fyrir annars staðar.
Við óskum því eftir því að eigendur lausamuna á myndinni, sem og annars staðar í þorpinu, hafi samband við okkur á skrifstofu Strandabyggðar sem fyrst, þannig að við getum sameinast um lausn. Ella þarf sveitarfélagið að grípa til annara aðgerða. Hafið endilega samband við sveitarstjóra í síma 899-0020 eða á netfangið thorgeir@strandabyggd.is eða ræðið málið við starfsmenn áhaldahúss, og við finnum sameiginlega lausn.
Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti