Laust starf í Íþróttamiðstöð Strandabyggðar
Salbjörg Engilbertsdóttir | 20. september 2017
Starfsmann vantar í 80% starf við Íþróttamiðstöðina á Hólmavík sem fyrst. Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starf sem felst meðal annars í afgreiðslu, baðvörslu, sundlaugarvörslu, þrifum, umsjón með tjaldstæði og öðrum tilfallandi verkefnum. Um er að ræða framtíðar starf og þarf starfsmaður að geta hafið störf sem fyrst. Gerð er krafa um búsetu í Strandabyggð. Unnið er á vöktum. Gerð er krafa um jákvæðni og ríka þjónustulund, stundvísi, dugnað, sjálfstæð vinnubrögð og kunnáttu í erlendum tungumálum. Í reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum kemur fram að starfsmenn sem sinna laugargæslu skuli hafa náð 18 ára aldri og standast eftirfarandi hæfnispróf sjá nánar um starfið hér. Umsóknum má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða Íþróttamiðstöðvar fyrir 30. september og nálgast má umsóknir hér