Laust starf ráðgjafa hjá Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps
Ráðgjafi óskast í 70-100% starf til eins árs
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps auglýsir eftir ráðgjafa í 70-100% afleysingastarf frá 1. ágúst 2023. Næsti yfirmaður er félagsmálastjóri.
Meginverkefni:
Barnaverndarmál.
Ráðgjöf í málefnum fatlaðs fólks.
Ráðgjöf í málefnum aldraðra.
Yfirumsjón með málefnum innflytjenda/flóttamanna.
Að vinna að stofnun atvinnuúrræðis fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu á félagsþjónustusvæðinu
Menntunar og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem félagsráðgjöf, iðjuþjálfun eða þroskaþjálfun.
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
Góð enskukunnátta æskileg.
Gott vald á íslenskri tungu.
Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Góð alhliða tölvukunnátta.
Hreint sakavottorð skilyrði í samræmi við lög og reglur félagsþjónustunnar.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí 2023
Laun eru samkvæmt kjarasamningi samband íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Soffía Guðmundsdóttir, félagsmálastjóri Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps í síma 451-3510 eða felagsmalastjori@strandabyggd.is.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á tölvupóstfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá um fyrri störf og menntun ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.