Leitar- og réttardagar 2021
Fjallakskilaseðill fyrir Strandabyggð 2021 er í lokafrágangi. Hér er yfirlit um dagsetningar leitar- og réttardaga. Ef athugasemdir eru sendið þá ábendingar á skrifstofu Strandabyggðar eða hafið samband við Pétur Matthíassson, formann Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefndar, sem fyrst.
A.
1. Leitarsvæði: Frá Mórillu að Selá.
Fyrri leit: Laugardaginn 11. september
Seinni leit: Laugardagur 25. september
2. Leitarsvæði: Frá Selá að Hafnardalsá.
Fyrri leit: Laugardaginn 28. ágúst
Seinni leit: Laugardagur 11. september
3.-6. Leitarsvæði: Frá Hafnardalsá að Gjörvidal.
Haft er samráð við Reykhólahrepp og þá sem fjárvon eiga, um leit á svæði 3-6.
Leitarsvæði 1 og 2 tengjast ekki réttum, heldur er leitað og rekið beint í hús.
B.
1. Leitarsvæði: Ósland
Fyrri leit: Laugardaginn 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
2. Leitarsvæði: Vatnadalur, Aratungudalur, Hrófbergsfjall að Norðdal og Staðará
&
3. Leitarsvæði: Frá Norðdal að Króksfelli, Háuholtum að Tíðalæk
Fyrri leit: Laugardaginn 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
Réttað verður í Staðarrétt sunnudaginn 19. september og sunnudaginn 3. október.
4. Leitarsvæði: Selárdalur að Króksfelli, Háuholtum að Tíðalæk.
Fyrri leit: Laugardaginn 11. september
Seinni leit: Laugardagur 25. september
Leitarsvæði 4, tengist ekki réttum, heldur er leitað og rekið beint í hús.
C.
1. Leitarsvæði: Frá Arnkötludalsá að Nautadalsá
Fyrri leit: Föstudaginn 10. september
Seinni leit: Laugardagur 25. september
2. Leitarsvæði: Frá Nautadalsá að Ósá
Fyrri leit: Föstudagur 10. september
Seinni leit: Laugardagur 25. september
Réttað verður í Skeljavíkurrétt föstudaginn 10. september og laugardaginn 25. september.
D.
1. Leitarsvæði: Frá Deild, Kollafjarðarnes – Kirkjuból
Fyrri leit: Laugardagur 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
2. Leitarsvæði: Miðdalur.
Fyrri leit: Laugardagur 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
3. Leitarsvæði: Tungudalur að Arnkötludalsá.
Fyrri leit: Laugardagur 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
Réttað verður í Kirkjubólsrétt sunnudaginn 19. september og sunnudaginn 3. október
E.
1. Bunguleit – Nónfjallsleit. Leitarsvæði: Frá Deild – Steinadalsheiði
Fyrri leit: Laugardagur 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
2. Fellsleit. Leitarsvæði: Steinadalsheiði, Steinadalur austan ár, Mókollsdalur vestan ár
Fyrri leit: Laugardagur 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
3. Leitarsvæði: Mókollsdalur, Litlidalur og út að landamerkjagirðingu
Fyrri leit: Laugardaginn 11. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
Rekið er beint í fjárhús.
Skilarétt í Kollafirði verður sunnudaginn 19. september og sunnudaginn 3. október
F.
1. Hálsleit. Leitarsvæði: Broddanes- og Broddadalsárlönd út í Stigavík
Fyrri leit: Laugardagur 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
Smalað er beint í hús.
2. Hálsleit. Leitarsvæði: Frá Grafarlandi að Stigavík
Fyrri leit: Laugardagur 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
Smalað er beint í hús.
G.
1. Gilleit. Leitarsvæði: Krossárdalur – Hærridalur – Kálfadalur – Mjóidalur
Kleifar út að girðingu. Eyrarfjall, Eyrarhlíð
Fyrri leit: Laugardagur 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
Smalað er beint í hús.
2. Gröf. Leitarsvæði: Frá Einfætingsgili, Langavatnshólar að Hvítarhlíðarlandi.
Fyrri leit: Laugardagur 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
Réttað er í Bitrufirði sunnudaginn 19. september og laugardaginn 2. október
H.
1. Leitarsvæði: Fram-Bitra.
Fyrri leit: Laugardagur 18. september
Seinni leit: Laugardagur 2. október
Leitarstjóra er heimilt að breyta dagsetningum til samræmis við fjárleitir í Dalabyggð og Hrútafirði.